10október
Hæ elskurnar, ég er flutt.
07maí
Blogg
Fyrir 4 árum síðan, lá ég uppá spítala, búin að bíða eftir þessum degi í níu mánuði.Ég var búin að fá stíl, sem átti að koma öllu í gang, búin að fara í nálastungur sem áttu að koma öllu af stað, búin að láta hreyfa tvisvar við belgnum, sem virkar stundum, en það bólaði ekki neitt á neinu.
Klukkan 6 að morgni 8 maí, var mér gefinn annar stíll, en ekkert breyttist.
Klukkan 10:30 var svo belgurinn loks sprengdur, og þá var ekki aftur snúið.
Af stað fór fæðingin og stóð hún yfir í rúma 7 og hálfan tíma.
Klukkan 17:54 fæddist svo lítil falleg stúlka 17 merkur og 54.5 cm.
Já, hún dóttir mín verður fjögurra ára gömul á morgun.
Ég man daginn sem hún fæddist eins og hann hafi verið í gær.
Án efa mesti gleðidagur í lífi mínu.
Þetta blogg er fyrir þig elsku stelpan mín, þú ert mér allt!




Mamma elskar þig :*
02október
Blogg (Leiðindartitill alltaf hreint!)
Tók þessa af svölunum hjá systur minni, bara svona quickshot mynd samt.






